Ljósmyndasafn Akraness var stofnað 28. desember 2002 í tilefni af 60 ára afmæli kaupstaðarins. Vel hefur verið unnið við að byggja upp safnið og bæta inn myndum og að hausti árið 2010 eru yfir 28.000 myndir að finna í safninu sem tímalega spanna meira en öld. Myndasafnið er að finna hér.
Myndasyrpur og sýningar eru þáttur í starfi Ljósmyndasafns Akraness. Haldnar hafa verið sýningar í bænum en einnig hér á vefnum og er þær að finna hér.
Nýjung hjá myndasafninu er að byrja söfnun hreyfimynda, bæði nýrri videomynda og einnig eldri filmumynda sem varðveittar eru víðs vegar í eigu Akurnesinga og annarra.
Ljósmyndasafn Akraness hóf starfsemi í nýju húsnæði að Dalbraut 1 þann 1. október 2009.
Ljósmyndasafn Akraness opnaði í nýjum húsakynnum, Dalbraut 1 í október 2009
© Ljósmyndasafn Akraness 2002-2010. Dalbraut 1, 300 Akranes
Sími: 433-1203, Netfang:
ljosmyndasafn@akranes.is