Alt Heidelberg
Frá vinstri: Valtýr Benediktsson (1909-1961), Pétur Emil Júlíus Kolbeins Þorvaldsson(1936-2020), Sólrún Yngvadóttir (1929-2012) og Sigríður Stefanía Sigmundsdóttir (1925-2018)
Leikritið var sýnt á árunum 1958-59. Alt Heidelberg eftir Wilhelm Meyer-Förster. Þýðandi Freysteinn Gunnarsson. Leikritið gerist á 19. öld. Þegar erfðaprins nokkur kemur til náms í Heidelberg fer allt í uppnám, ekki síst hjá vertinum sem á að hýsa hinn tigna stúdent. Fljótlega heillast prinsinn af áhyggjulausu lífi stúdentanna og þá ekki síður af stúlku sem vinnur hjá gestgjafa hans. Hann hellir sér út í skemmtanalífið, en verður frá að hverfa þegar furstinn deyr og skyldan kallar.
Efnisflokkar