Ljósmyndasafn Akraness

Hlutverk Ljósmyndasafns Akraness er að safna, skrá og varðveita ljósmyndaefni svo sem ljósmyndir, glerplötur, filmur og skyggnur sem og önnur gögn og skjöl sem tengjast greininni og hafa menningarsögulegt gildi og varpa ljósi á sögu Akraness.

Við rekstur safnsins er lögð áhersla á að varðveisla mynda, filma og annarra gagna sé eins og best verður á kosið. Safnið tekur við og varðveitir efni frá fyrirtækjum, stofnunum og einkaðilum sé þess óskað. Ljósmyndasafn Akraness hefur jafnframt það hlutverk að festa samtímasögu kaupstaðarins á mynd sem og að afla skipulega heimildaljósmynda um sögu hans.

Markmið Ljósmyndasafns Akraness er að gefa heildarmynd af þeirri ljósmyndamenningu sem stunduð hefur verið í bænum frá því að byrjað var að taka ljósmyndir á Akranesi.
Ljósmyndasafn Akraness stendur fyrir sýningum á myndum í eigu safnsins.
Bæjarstjórn Akraness setur safninu gjaldskrá sem fylgt er þegar efni er selt einstaklingum, stofnunum og fyrirtækjum til notkunar.

Það er von starfsmanna Ljósmyndasafns Akraness að með góðri þátttöku Skagamanna verði þessi vefur uppspretta fróðleiks um bæði sögu og samtíma.

Saga safnsins

Ljósmyndasafn Akraness var stofnað 28. desember 2002 í tilefni af 60 ára afmæli kaupstaðarins. Fyrsta framlag til safnsins kom frá feðgunum Helga Daníelssyni og Friðþjófi Helgasyni en við stofnun safnsins afhentu þeir hluta af ljósmyndaverkum sínum jafnframt sem undirritað var samkomulag um að þeir afhentu safninu allar ljósmyndir sínar og filmur í fyllingu tímans.

Safneign

Í Ljósmyndasafni Akraness eru nú varðveittar um 200.000 ljósmyndir af ýmsum stærðum og gerðum. Elstu myndirnar eru frá því um 1880 og þær yngstu frá 2019. Á vef Ljósmyndasafns Akraness er fjölbreytt myndefni, m.a. nefna mannamyndir teknar á ljósmyndastofum, landslags- og fjölskyldumyndir ljósmyndara og áhugaljósmyndara.