Akraneskaupstaður og Héraðsskjalasafn Akraness standa fyrir nýrri og lifandi sýningu sem varpar ljósi á hjólamenningu bæjarins í gegnum árin.
Á sýningunni má sjá fjölbreyttar myndir sem fanga hversdagslíf, leik og ferðalög á hjólum. Akranes hefur einstaka sérstöðu þegar kemur að hjólreiðum. Bærinn er flatlendur, vegalengdir stuttar og auðvelt að komast á milli staða á einfaldan og umhverfisvænan hátt. Eflum hjólamenningu á Akranesi!
Hér að neðan finnur þú frekari upplýsingar um myndefnið og ef þú smellir hér færðu upp skemmtilegar hjólaleiðir kaupstaðarins.
Sýningin er á Akratorgi og aðgengileg hér á vef Ljósmyndasafns Akraness.
Sérstakar þakkir fær Topp útlit fyrir prentun og uppsetningu á Akratorgi.