Heimaey VE 1
Loðnu dælt úr nótinni á Heimaey VE1 í lok febrúar 2001 en þá gekk loðna vestan að og inn í Faxaflóa. Ég og Friðþjófur Helgason fegnum Pétur Þór Lárusson á Akranesi til að sigla með okkur út á flóann með hraðbát sem hann átti og hét Háhyrningur. Þarna vorum við daglangt við ljósmyndun og fréttaöflun, - mikil líf, mörg skip og hnúfubakar. Þegar við komum að Heimaey var hún við að fylla. Við fórum um borð og tókum sjónvarpsviðtöl við karlanna fyrir fréttir RUV.
Efnisflokkar