Í Axelsbúð
Verslun Axels Sveinbjörnssonar. Þetta skilti var sett á húsið þar sem verslunin var sett á stofn í. Hún hét fyrst Axel Sveinbjörnsson skipaverzlun. Skiltið var búið til í Skiltagerðinni á Skólavörðustíg og sá sem málaði það hét Ágúst Hakonsen, hann merkti verk sín HÄK og þeir upphafsstafir hafa varðveist í horninu neðst til vinstri á skiltinu. Skiltið var í mörg ár geymt upprúllað, en gert upp þegar verslunin var 50 ára. Skiltið er nú á Byggðasafni Akraness.
Efnisflokkar