Óli E. Björnsson og Bragi Hauksson

Myndin er úr starfi Taflfélags Akraness. Óli Eðvald Björnsson(1926-2013) teflir við Braga Hauksson. Óli leiddi barna- og unglingastarf félagsins um árabil. "Ef ég hef hvítt set ég kóngspeðið fram um tvo reiti. Ef hinn setur sitt kóngspeð fram um tvo reiti set ég á það með riddaranum", sagði Bragi Hauksson, 8 ára upprennandi skákmaður, er hann lýsti skákbyrjun sinni.

Efnisflokkar
Nr: 16900 Ljósmyndari: Helgi Daníelsson Tímabil: 1960-1969 hed00731