Hríseyjarviti

Vitinn var byggður árið 1920 eftir teikningu verkfræðinganna Thorvalds Krabbe og Guðmundar J. Hlíðdal. Ljóshúsið er áttstrent, smíðað á Íslandi. Gasljós var í vitanum fram til ársins 1987 að hann var rafvæddur. Upphaflega var vitinn hvítur að lit og rauð rönd um hann miðjan. Hann var málaður gulur á sjöunda áratug 20. aldar eins og flestir þeirra vita sem ekki höfðu verið steinaðir utan. Járnhandrið sem var í kringum svalir hefur verið tekið brott og er nú handrið úr álstoðum og timbri komið í staðinn. Að því fráteknu og litnum er útlit vitans lítið breytt frá upphafi. Hann nýtur nú friðunar. Texti af sjominjar.is.

Efnisflokkar
Viti ,
Nr: 56760 Ljósmyndari: Þjóðbjörn Hannesson Tímabil: 1960-1969 þjh00163