Akraneshöfn

Mynd þessa tók Ólafur fyrir Framtak, en mynd úr þessari myndaröð birtist á baksíðu 1. tbl. 18.árg. Framtaks sem dagsett er 5. febrúar 1966. Með myndinn er frétt þess efnis að „[l]okið er fyrri hluta framkvæmda við fyrsta áfanga að stækkun hafnargarðsins á Akranesi.“ Myndin mun þó sennilega vera tekin sumarið áður, þ.e.a.s. 1965, en í 6. tbl. blaðsins er önnur mynd úr þessari myndaröð og fylgir henni sá texti að það séu "framkvæmdir í Akraneshöfn á síðastliðnu sumri.“

Efnisflokkar
Nr: 19943 Ljósmyndari: Ólafur Árnason Tímabil: 1960-1969 ola01125