Beitningarbalar á vörubílspalli

Myndin sýnir þegar verið er að undirbúa að fara með beitta línu niður að höfn fyrir HB bát. Myndin er tekin við Breiðargötu neðan við Niðursuðuverksmiðjuna þar sem beitningarskúrar HB voru. Á móti má sjá salthús HB. Myndin er tekin þegar trébalar voru enn notaðir.

Nr: 24414 Ljósmyndari: Bjarni Árnason Tímabil: 1950-1959 bar00554