Sigurður Hallbjarnarson HF
Síldarsöltun hjá Sigurði Hallbjarnarsyni hf. Færibandið til hægri flutti síldina út 30 tonna hráefniskassa, sem var utandyra. Einn starfsmaður gekk svo eftir plönkum yfir aðalfæribandinu til að mata síld í rennur framan við söltunarstúlkur og færibandið til vinstri flutti slóg og úrgangssíld í síló sem voru austanvert á húsinu. Undir þau fóru svo vörubílar sem fluttu úrganginn í síldarverksmiðjuna. Ég held að öruggt sé að þetta hafi verið fyrsta færibandið við síldarsöltun á Akranesi.
Efnisflokkar