Bifvélaverkstæði Daníel Friðriksson - Suðurgata 126

Þetta hús hefur hýst ýmsa starfsemi gegn um tíðina. Sem sjá má var þar upphaflega bifreiðaverkstæði og þjónaði sem slíkt í allmörg ár. Þegar verkstæðið var aflagt stóð húsið autt um nokkurn tíma en síðar var efri hæðin nýtt fyrir líkamsræktarstöð. Síðar mun hæðinni hafa verið breytt í íbúðarhúsnæði að hluta, en nú 2006 hefur Skagakleikflokkurinn aðstöðu þar til æfinga og sýninga.

Efnisflokkar
Nr: 24921 Ljósmyndari: Bjarni Árnason Tímabil: 1930-1949 bar00882