Kirkjubraut 40

Þetta er húsið við Kirkjubraut 40, sem kallað var Félagahúsið því að byggingu þess stóðu m.a Verkalýðsfélag Akraness, Verslunarmannafélag Akraness og Sveinafélag málmiðnaðarmanna á Akranesi. Höfðu félagasamtök þessi skrifstofur sínar í húsinu um nokkurt skeið eftir byggingu þess ásamt annarri starfsemi, en nú hafa sum þessara félag sameinast félögum á höfuðborgarsvæðinu og starfsemi þeirra flutt úr húsinu.

Nr: 18433 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: 1980-1989 oth01580