Jólastemming með Pýramídisk afstraksjón

Þetta verk, “Pýramídísk afstraksjón”, var sett upp 1975 í tilefni af Kvennaári. Það var Kvenfélag Akraness, Menningarsjóður bæjarins og Sementsverksmiðjan sem stóðu straum af kostnaði. - Þá þrengdi ekki að listaverkinu eins og e.t.v. nú vegna blokkarbyggingar - og við afhendingu verksins komst Anna Erlendsdóttir, þá formaður kvenfélagsins, svo að orði:“Listaverkið stendur hér við aðalbraut og í sínum kraftmikla einfaldleika blasir það við öllum sem í bæinn koma.”

Nr: 13820 Ljósmyndari: Hilmar Sigvaldason Tímabil: 2000-2009 his00659