Brautarholt í Selárdal

Samúel Jónsson (15. september 1884 – 5. janúar 1969) var bóndi í Brautarholti í Selárdal í Ketilsdalahreppi í Arnarfirði. Hann er oftast nefndur Samúel Jónsson í Selárdal eða Listamaðurinn með barnshjartað og er einn frægasti alþýðulistamaður sem upp hefur komið á Íslandi í seinni tíð. Samúel málaði mikið sem ungur maður, en ferill stærri verka hans hófst þegar hann reisti sér kirkju með laukturni á landareign sinni. Það gerði hann þegar sóknarnefndin vildi ekki hafa altaristöfluna sem hann hafði málað í Selárdalskirkju, en kirkjan átti gamla altaristöflu og hún fékk að vera. Samúel gerði einnig frægt líkan af Péturskirkjunni sem og líkan af indversku musteri, sem listasafn ASÍ tók að sér eftir andlát hans. Hann gerði einnig styttu af Leifi heppna og steypti upp eftirmynd af frægum gosbrunni sem er í Ljónagarðinum (Patio de los Leones) í Alhambra á Spáni. Mörg af þessum stærri verkum hans er enn að finna í Selárdal, en flest af þeim liggja undir skemmdum Texti af Wikipedia

Nr: 49402 Ljósmyndari: Jóhannes Gunnarsson Tímabil: 1960-1969