Austurvöllur

Austurvöllur er torg í miðborg Reykjavíkur. Á miðjum Austurvelli er stytta af Jóni Sigurðssyni, sjálfstæðishetju íslensku þjóðarinnar, hún snýr að Alþingishúsinu sem er einnig við Austurvöll. Austurvöllur er vinsæll samkomustaður Reykvíkinga á góðviðrisdögum. Þar hafa mótmæli oft átt sér stað sökum þess að Alþingi er þar nærri. Austurvöllur afmarkast af götunum Vallarstræti, Pósthússtræti, Kirkjustræti og Thorvaldsensstræti. Síðastnefnda gatan er einmitt nefnd eftir Bertel Thorvaldsen, en stytta af honum stóð lengi á miðjum Austurvelli. Nú stendur stytta af Jóni Sigurðssyni þar sem hún stóð áður. Í kring um Austurvöll standa margar af merkari byggingum borgarinnar, þar á meðal Alþingishúsið, Hótel Borg og Landssímahúsið (en þar voru höfuðstöðvar Póst og síma lengst af) og Dómkirkjan í Reykjavík. Austurvöllur er vinsæll meðal ungra Reykvíkinga á góðviðrisdögum. Ástæða þessa er sú að nokkur kaffihús, sem eru í byggingunum við Vallarstræti og Pósthússtræti, hafa borð og stóla utandyra þegar veður leyfir. Einnig er mikið setið á grasinu á Austurvelli sjálfum þegar þannig stendur á. Austurvöllur var öllu stærri áður fyrr. Í upphafi 18. aldar náði Austurvöllur vestan frá Aðalstræti og austur að læk, norðan frá Hafnarstræti og suður að Tjörn. Texti af Wikipedia

Nr: 40261 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: 1930-1949