Reykholtskirkja

Reykholtskirkja var reist á árunum 1886-87 af forsmiðnum Ingólfi Guðmundssyni. Form kirkjunnar er undir áhrifum frá Dómkirkjunni í Reykjavík og er hún heilsteypt verk og mikilvægt dæmi um þróun íslenskrar byggingarlistar á síðari hluta nítjándu aldar. Guðmundur Helgason prestur í Reykholti átti frumkvæði að kirkjusmíðinni. Kirkjan var vígð 31. júlí 1887 og tók söfnuðurinn við henni árið 1895. Kirkjan var snemma klædd að utan með bárujárni vegna óþéttleika en síðar eða um miðja 20. öld var úttliti hennar breytt verulega. Þá voru m.a. settir í hana nýir gluggar, bogmyndaðir að ofan. Kirkjan var tekin í vörslu Þjóðminjasafns Íslands árið 2001 og hófust í kjölfarið viðamiklar viðgerðir á henni. Í þeim hefur verið tekið mið af því hvernig hún leit út í upphafi. Texti af thjodminjasafn.is

Efnisflokkar
Kirkja ,
Nr: 43381 Ljósmyndari: Bjarni Árnason Tímabil: 1930-1949