Goðdalakirkja

Goðdalakirkja er í Mælifellsprestakalli í Skagafjarðarprófastadæmi. Goðdalir eru bær, kirkjustaður og fyrrum prestssetur í neðanverðum Vesturdal. Þar var kirkja helguð heilögum Nikulási í katólskum sið. Útkirkja var í Ábæ. Prestakallið var lagt niður 1907 og sóknir þess lagðar til Mælifells. Kirkjan, sem þar stendur nú, var byggð 1904 og endurvígð 1959. Kirkjan, sem var byggð 1885, fauk í óveðri 1903 og hin nýja var byggð úr viðum hennar.

Efnisflokkar
Kirkja ,
Nr: 35140 Ljósmyndari: Jóhannes Gunnarsson Tímabil: 1960-1969