Vígsluathöfn Klukkuturnsins í Görðum 12. júlí 1958
					Í fögru veðri var turninn vígður af biskupi landsins, dr. Ásmundi Guðmundssyni og við opinn glugga á efstu hæð söng kirkjukórinn en athöfnin fór fram úti fyrir dyrum turnsins. Turninn er reistur til minningar um fornt kirkjuhald í Görðum og var valinn staður sem næst því sem menn ætluðu að verið hefði kórstæði Garðakirkju. Skóflustungan að klukkuturninum var tekin 3. júlí 1955 og var sú dagsetning valin með hliðsjón af því að þann dag hefði sr. Þorsteinn Briem orðið sjötugur, hefði honum enst aldur. Séra Jón M. Guðjónsson var forvígismaður að byggingu turnsins og teiknaði útlit hans.
Efnisflokkar
			
		
		
			Nr: 29225
		
					
							
											Tímabil: 1950-1959
								
					
				
			