Alt Heidelberg
Leikritið var sýnt á árunum 1958-59. Óþekktur hópur. Sennilega kórfélagar úr Karlakórnum Svönum. Alt Heidelberg eftir Wilhelm Meyer-Förster. Þýðandi Freysteinn Gunnarsson. Leikritið gerist á 19. öld. Þegar erfðaprins nokkur kemur til náms í Heidelberg fer allt í uppnám, ekki síst hjá vertinum sem á að hýsa hinn tigna stúdent. Fljótlega heillast prinsinn af áhyggjulausu lífi stúdentanna og þá ekki síður af stúlku sem vinnur hjá gestgjafa hans. Hann hellir sér út í skemmtanalífið, en verður frá að hverfa þegar furstinn deyr og skyldan kallar.
Efnisflokkar