Akraborg

Árið 1974 var skipið selt Cosag Marine Services Ltd., í London og nafni þess haldið óbreyttu. Israel Nautical College í Ísrael keypti skipið árið 1980 og nefndi það CAPTAIN ZEEV HAYAN. Var skipið notað sem skólaskip. Árið 1991 var skipið selt til Honduras og nafni þess breytt í POLARIS. Síðar sama ár var skipið aftur selt Hondurasútgerð og nafni þess þá breytt í AIR. Var því breytt í siglandi útvarpsstöð. Þann 31. janúar 1992 rak skipið á land undan borginni Haifa í Ísrael. Vont veður var er skipið strandaði. Náðist það á flot aftur 26. mars 1992 en reyndist ónýtt og var það selt til niðurrifs í október 1993.

Efnisflokkar
Nr: 20909 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: 1970-1979 oth02631