Sandlóan

Sandlóan er álíka stór og sendlingur og lóuþræll og um margt lík heiðlóu í vaxtarlagi. Hún er þó töluvert minni en heiðlóan, þybbnari, hálsstutt og frekar kubbslega vaxin en með mikið vænghaf miðað við lengd eða rúmlega tvisvar sinnum lengd sína. Flýgur yfirleitt lágt og hratt sem er svipað og með fótaburð hennar en hún er þekkt fyrir snöggan fótaburð, enda skýst hún svo hratt um að varla að hún sjáist. Svo snar stoppar hún og hverfur inn í umhverfi sitt því litarhaft hennar er ágætis felubúningur, sérstaklega í fjörum. Ljósbrún að ofan, bæði höfði og baki en hvít að neðan. Með svartan og hvítan kraga um hálsinn og hvítt enni og svarta breiða línu á milli augnanna sem einnig eru svört. Hún er með rauðgult nef með svörtum oddi. Fæturnir eru ljósgulir á litinn og stuttir. Sandlóan finnst um alla norðanverða Evrópu og Asíu. Hún er farfugl á Íslandi og kemur venjulega um miðjan apríl og fer suður á bóginn um miðjan september. Þær sem hér verpa halda sig á veturnar á leirum og sandfjörum, mest á Bretlandseyjum, meðfram vesturströnd Frakklands og Spánar og suður til Marokkó. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Fuglar ,
Nr: 52556 Ljósmyndari: Friðþjófur Helgason Tímabil: 2000-2009