Æðarfuglar

Æðarfugl eða æður (fræðiheiti: Somateria mollissima) er stór sjóönd sem útbreidd norðan megin á strandlengju Evrópu, Norður Ameríku og Síberíu. Hann verpir á Norðurslóðum og sums staðar í norðurhluta tempraða svæða en hefur vetursetu í suðurhluta tempraðra svæða þar sem oft má sjá þá í stórum flokkum í flæðarmálinu.Æður verpir nærri sjó og er oft í stórum og þéttum hólmum. Hreiðrið er opið og fóðrað með dúni. Kollan verpir venjulega 4-6 eggjum í maí til júní. Hún fóðrar hreiðrið að innan með æðardúni sem hún reitir af brjósti sér. Æðarfugl er staðfugl á Ísland og hópar sig saman svo til allt árið og eru hóparnir oft mjög stórir. Utan varptímans heldur æðarfugl sig oft við árósa, víkur og voga í þúsundatali. Æðarfugl nær 10-20 ára aldri.Æðarfuglar halda til meðfram ströndinni allt árið. Uppruni kollunnar ræður hvar varpstaður er, en varpið hefst um miðjan maí. Útungungartíminn er um 4 vikur. Innan við sólarhring eftir að ungarnir fæðast leitar kollan með þá út á sjó í fæðuleit. Við fjaðrafelli hópa blikarnir sig saman á stöðum þar sem fæða er nóg og þeir öruggir. Geldfuglar halda sig á sömu slóðum, en kollurnar mynda oft sérhópa síðari hluta sumars. Blikarnir byrja þegar í júní að hópast saman í fellihópa en blikahóparnir leysast svo upp í september til október og paramyndun hefst. Áætlað er að fjöldi æðarfugla sem hafa vetursetu á Íslandi sé um 973 þúsund.Æðarfugl er einn mesti nytjafugl á Íslandi. Árið 1786 var sett ákvæði í lög um takmarkaða friðun en frá árinu 1847 hefur æðarfugl verið alfriðaður. Öll meðferð skotvopna er bönnuð nær friðlýstu æðarvarpi en 2 km nema brýna nauðsyn beri til. Oft er umferð um æðarvarp bönnuð á varptíma. Æðarvarp er mikilvæg hlunnindi á mörgum bújörðum og á árinu 1987 höfðu 419 jarðir dúntekjur. Flest æðarvörp á Íslandi eru tilbúin þ.e. Mótuð af eigendum æðarvarpsins. Landeigendur vaka yfir varpinu og hæna að æðarfugla en stugga burtu og skjóta vargfugla, refi og minka. Æðardúnn hefur verið nýttur öldum saman m.a. Í sængur og kodda og sem einangrun í kuldafatnað. Nytjar af æðarfugli á Íslandi hafa numið um 3.000 kg af æðardúni á ári. Úr hverju hreiðri fást 15 - 20 grömm af æðardún, þannig að um 60 hreiður þarf til að fá í 1 kíló af dún.Æðarfugl er ein mikilvægasta fæða íslenska arnarins.Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Fuglar ,
Nr: 38000 Ljósmyndari: Kolbrún Ingvarsdóttir Tímabil: 2000-2009