Katanesdýrið

Katanesdýrið á Katanesi á Hvalfjarðarströnd. Var því lýst að hafi hala afamikinn á að giska þriggja álna langan. Hvítleitt á búkinn og hausinn rauður. Hafi sex stórar klær á hverjum fæti, stuttan kjaft og miklar framtennur fjórar að tölu og hvassar. Eyrun eru löng og lafandi, en þó hafa menn séð það reisa þau beint upp. Sagt var hvorki hafi það hár né hreistur á húð. Mikið var fjallað um Katanesdýrið á árunum 1874 til 1876. Myndin er teiknuð af Benedikti Görndal skáldi og náttúrufræðingi.

Nr: 34375 Ljósmyndari: Sigfús Eymundsson Tímabil: Fyrir 1900