Akranes sigraði Hamborg 3-2

Þessi mynd er frá 5. júní árið 1954, þegar úrval knattspyrnumanna frá Hamborg kom og lék við Akurnesinga eins og frægt var á sínum tíma. "Í grein í Morgunblaðinu segir að lið Skagamanna hafi sigrað með 3 mörkum gegn 2 eftir að hafa sýnt hreina yfirburði í leiknum sem var einhver sá skemmtilegasti sem hér hefur sést um langan tíma. Hinir þýsku gestir Akraness fara heim með 2 sigra, eitt jafntefli við Skagamenn og eitt tap." Myndin tekin árið 1954

Efnisflokkar
Nr: 58905 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: 1950-1959