Í Þórshöfn í Færeyjum á Ólafsvöku 1966
Myndin er tekin fyrir leik við B-36 í Þórshöfn í Færeyjum í ágúst 1966 á Ólafsvöku þeirra Færeyinga. Þessi leikur endaði 3:0 og Björn Lárusson skoraði öll mörkin. Frá vinstri: Ríkharður Jónsson (1929-2017), Einar Guðleifsson (1947-), Arnór Pétursson (1949-2011), Guðjón Guðmundsson (1945-), Guðmundur Hannesson (1947-), Benedikt Rúnar Hjálmarsson (1946-1990), Þröstur Stefánsson, Kristinn Guðmundsson (1949-), Gunnar Sigurðsson (1946-), Björn Lárusson (1945-) og Matthías Hallgrímsson (1946-).
Efnisflokkar