Frá sjómannadeginum - Sjómaðurinn

Styttan er á Akratorgi og er eftir Martein Guðmundsson (1905-1952). - Listaverkið var afhjúpað af Lilju Pálsdóttur við hátíðlega athöfn á sjómannadaginn árið 1967. Það var árið 1944 sem Marteinn mótaði frumkast sitt að höggmyndinni Sjómaðurinn. Nefnd, sem kjörin hafði verið til þess að reisa minnismerki sjómanna á Akranesi keypti verkið og lét stækka og steypa í eir í Noregi með stuðningi Akranesbæjar. Aðalhvatamaður að þessu verki var sr. Jón M. Guðjónsson, fyrrum sóknarprestur á Akranesi.

Nr: 18471 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: 1960-1969 oth01618