Kristilega mótið

Kristilegt mót var haldið á Akranesi árið 1944. Mótið var haldið á Kirkjuvallatúninu, þar sem Sjúkrahús Akraness stendur nú. Myndin er trúlega tekin af tröppunum í Hákoti, en það stóð þar sem KB banki stendur nú. Húsin, sem sjást í bakgrunni eru talin frá vinstri: Heiðarbraut 31 (Brekkukot), Vesturgata 127 (Mýrarhús), Heiðarbraut 33 (Litla-Brekka), Heiðarbraut 35, Smiðjuvellir, Heiðarbraut 39, Tjörn og útihús frá Kirkjubæ

Nr: 25403 Ljósmyndari: Bjarni Árnason Tímabil: 1930-1949