Alt Heidelberg

Frá vinstri: Bjarnfríður Leósdóttir (1924-2015), Hilmar Snær Hálfdánarson (1934-2015), Sigríður Ó. Kolbeins (1935-2017),  Bjarni Aðalsteinsson (1931-), Þórður Hjálmsson (1911-1985), Jóhanna Halldóra Jóhannsdóttir (1927-2015) og Sigurður Guðjónsson (1924-2002). Leikritið var sýnt í Bíóhöllinni á árunum 1958-1959 Alt Heidelberg eftir Wilhelm Meyer-Förster. Þýðandi Freysteinn Gunnarsson. Leikritið gerist á 19. öld. Þegar erfðaprins nokkur kemur til náms í Heidelberg fer allt í uppnám, ekki síst hjá vertinum sem á að hýsa hinn tigna stúdent. Fljótlega heillast prinsinn af áhyggjulausu lífi stúdentanna og þá ekki síður af stúlku sem vinnur hjá gestgjafa hans. Hann hellir sér út í skemmtanalífið, en verður frá að hverfa þegar furstinn deyr og skyldan kallar.

Nr: 14706 Ljósmyndari: Árni Böðvarsson Tímabil: 1950-1959 arb00918