Alt Heidelberg
Frá vinstri: Bjarnfríður Leósdóttir (1924-2015), Sigríður Ó. Kolbeins (1935-2017), Sigurður Guðjónsson (1924-2002) og Hilmar Snær Hálfdánarson (1934-2015) Leikritið var sýnt í Bíóhöllinni á árunum 1958-1959. Alt Heidelberg eftir Wilhelm Meyer-Förster. Þýðandi Freysteinn Gunnarsson. Leikritið gerist á 19. öld. Þegar erfðaprins nokkur kemur til náms í Heidelberg fer allt í uppnám, ekki síst hjá vertinum sem á að hýsa hinn tigna stúdent. Fljótlega heillast prinsinn af áhyggjulausu lífi stúdentanna og þá ekki síður af stúlku sem vinnur hjá gestgjafa hans. Hann hellir sér út í skemmtanalífið, en verður frá að hverfa þegar furstinn deyr og skyldan kallar.
Efnisflokkar