Alt Heidelberg

Garðar Óskarsson (1929-2010) og Magnús Jónsson (1913-2007). Leikritið var sýnt í Bíóhöllinni á árunum 1958-1959. Alt Heidelberg eftir Wilhelm Meyer-Förster. Þýðandi Freysteinn Gunnarsson. Leikritið gerist á 19. öld. Þegar erfðaprins nokkur kemur til náms í Heidelberg fer allt í uppnám, ekki síst hjá vertinum sem á að hýsa hinn tigna stúdent. Fljótlega heillast prinsinn af áhyggjulausu lífi stúdentanna og þá ekki síður af stúlku sem vinnur hjá gestgjafa hans. Hann hellir sér út í skemmtanalífið, en verður frá að hverfa þegar furstinn deyr og skyldan kallar.

Nr: 14681 Ljósmyndari: Árni Böðvarsson Tímabil: 1950-1959 arb01195