Hilmar Finsen

Søren Hilmar Steindór Finsen (1824-1886), var dansk-íslenskur stjórnmálamaður (Stiftamtmaður), fulltrúi konungs á Alþingi á árunum 1865-73 og fyrsti landshöfðingi Íslands. Hilmar fæddist í Kolding á Jótlandi. Foreldrar hans voru Jón Finsen, héraðsfógeti, og Katharina Dorothea en Jón var sonur Hannesar Finnssonar biskups. Hilmar var uppalinn í Danmörku. Hann kom til Íslands og var gerður að fyrsta landshöfðingjanum 1. apríl 1873. Því embætti gegndi hann í áratug en þá fluttist hann aftur til Danmerkur og tók við embætti yfirborgarstjóra Kaupmannahafnar. Hilmar var innanríkisráðherra Danmerkur í rétt tæplega ár, 1884-85. Hann lést 15. janúar 1886.

Nr: 32687 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: Fyrir 1900