Veiðibjallarungi

Svartbakur (fræðiheiti Larus marinus, sem þýðir á latínu „hafmáfur“ eða „sjávarmáfur“) er stærstur máfa og er oft nefndur veiðibjalla.[1] Hann er svartur og hvítur á lit, goggur hans er gulur og sterklegur og rauður blettur finnst fremst í neðri skolti. Fætur svartbaksins eru ljósbeikir og augu hans ljós. Svartbakur getur vegið rúm 2 kg og vænghafið getur orðið allt að 1,5 metrar. Hann verpir snemma á vorin í dyngju á jafnsléttu og eru eggin að meðaltali þrjú talsins, og tekur það þau um fjórar vikur að klekjast út. Svartbakur verður kynþroska við 4-5 ára aldur. Svartbakur er staðfugl á Íslandi og hefur þeim fjölgað mjög á Íslandi vegna aðgangs að lífrænum úrgangi sem kemur aðallega frá sjávarútveginum. Stofnstærð er talin í kringum 20 þúsund varppör.

Efnisflokkar
Fuglar ,
Nr: 52541 Ljósmyndari: Friðþjófur Helgason Tímabil: 2000-2009