Hraunfossar í Borgarfirði

Hraunfossar – (einnig nefndir Girðingar) – er samheiti á ótal tærum, fossandi lindum sem koma undan Hallmundarhrauni, sem á þessum stað er nefnt Gráhraun, og renna í Hvítá í Borgarfirði. Skammt frá Hraunfossum er bærinn Gilsbakki í Hvítársíðu, ferðamannastaðurinn Húsafell er þar í grennd og ekki er langt til Reykholts. Úrkoma sem fellur á hraunið og jarðvatn sem síast frá umhverfinu, rennur á milli hraunlaga og kemur fram við hraunjaðarinn og myndar Hraunfossa. Vatnið kemur fram undan hraunjaðrinum á um 1 km löngum kafla. Falla þar fram í Hvítá ótal bunur og fossar, um kletta og skógarkjarr, allan ársins hring. Rennslið frá lindunum er um 5 m³/s (rúmmetrar á sekúndu) og vatnshitinn um 3,5°C. Barnafoss er gljúfri í Hvítár ofan við Hraunfossa. Staðurinn er þekktur fyrir steinboga (brýr) sem áin hefur markað í bergið með ógnarkrafti sínum. Meðalrennsli árinnar er að jafnaði 80 m³/s en hefur í flóðum mælst allt að 500 m³/s. Þá flæðir áin upp úr þrengingunum og yfir nærliggjandi svæði eins og umhverfið ber með sér. Svæðið var friðlýst árið 1987. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Nr: 51393 Ljósmyndari: Friðþjófur Helgason Tímabil: 2000-2009