Surtshellir

Surtshellir er lengsti og þekktasti hraunhellir á Íslandi, um 1.970 metrar á lengd. Surtshellir er í Hallmundarhrauni, á um 40 m dýpi í um 14 km frá Húsafelli og 60 km frá Borgarnesi. Hæð til lofts í aðalhelli er 8-10 m og 2-4 m í vesturenda hans. Innsti hluti hellisins hefur verið kallaður Íshellir því í honum myndast ísstrýtur. Íshellir er í senn greiðfærasti og fegursti hluti hellisins, en hellisgólf hallar nokkuð. Þá er seinfarið er um hellinn því í botni hans er víða stórgrýtt urð, sem fallið hefur úr þakinu. Á hellisþaki eru fimm op sem komast má um inn í hellinn. Opin hafa ýmist myndast við hrun eða sem útrásir fyrir hraunleðju. Þrír afhellar eru út frá fremsta hluta Surtshellis, Beinahellir, Hringhellir og Vígishellir hvar innan eru mannvirki, grjóthleðsla og fleiri hleðslur. Skammt frá Surtshelli er hellirinn Víðgelmir. Þak Surtshellir og Víðgelmir eru vinsælir áfangastaðir ferðamanna. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Hraun ,
Nr: 51391 Ljósmyndari: Friðþjófur Helgason Tímabil: 2000-2009