Svörtuloftviti

Árið 1914 var reistur 10 m hár járngrindarviti með 2,3, m ljóshúsi yst á Skálasnaga á Svörtuloftum vestast á Snæfellsnesi. Thorvald Krabbe teiknaði mannvirkið. Vitinn entist í 17 ár þá var hann orðinn mjög ryðbrunninn og þótti ekki lengur treystandi. Árið 1931 var tekinn í notkun nýr viti sá var steinsteyptur, ferstrendur 9,5 m hár. Benedikt Jónsson verkfræðingur hannaði vitann. Upplýsingar eru fengnar úr bókinni Vitar á Íslandi, útgefandi er Siglingastofnun Íslands árið 2002. Texti af west.is

Efnisflokkar
Viti , Hraun ,
Nr: 51374 Ljósmyndari: Friðþjófur Helgason Tímabil: 2000-2009