Silfurmáfur

Silfurmáfur (fræðiheiti: Larus argentatus) er stór máfur með grátt bak og svarta vængbrodda en hvítur á kvið og haus. Hann er með gulan gogg með rauðum blett undir að framan eins og sílamáfur og svartbakur. Einkum getur verið erfitt að greina milli silfurmáfs og sílamáfs. Hann verður fullvaxinn 63sm að lengd og vegur eitt kíló. Silfurmáfum hefur fjölgað á Norðurslóðum síðustu áratugi vegna nábýlis við manninn. Máfurinn gerir sig í vaxandi mæli heimakominn í bæjum og borgum þar sem hann finnur sér æti í sorpi. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Fuglar ,
Nr: 51091 Ljósmyndari: Friðþjófur Helgason Tímabil: 2000-2009