Straumönd
Straumönd (fræðiheiti: Histrionicus histrionicus) er fugl af andaætt. Straumönd er staðfugl á Íslandi og verpir um nær allt land, en mest í kringum Mývatn. Þar er líklegasta þéttasta straumandarvarp í heimi. Straumendur eru algengar með annesjum landsins yfir vetrarmánuðina. Þegar fer að vora færir hún sig innar í firði og við árósa. Á vorin eru oft nokkrir karlfuglar um hvern kvenfugl. Karlfuglar byrja að fella fjaðrir í júlí og hópa sig saman. Straumendur eru alfriðaðar. Texti af Wikipedia
Nr: 51074
Tímabil: 2000-2009