Fálki

Fálki (eða valur) (fræðiheiti: Falco rusticolus) er stór ránfugl sem heldur til í freðmýrum og fjalllendi sem og við strendur og eyjur á Norðurslóðum. Fálkar geta náð 60 cm lengd og vænghaf þeirra getur orðið 130 sm. Lögun og gerð vængja fálka gerir þeim kleift að fljúga óhemju hratt. Á miðöldum voru fálkar taldir fuglar konunga. Þeir voru notaðir í sérstaka íþrótt, fálkaveiðar sem voru nánast eingöngu stundaðar af konungum og aðli og voru slíkir fálkar nefndir slagfálkar. Íslenski fálkinn (fræðiheiti: Falco rusticolus islandicus) er ein deilitegund fálka. Önnur deilitegund er hvítfálkinn (Falco rusticolus candicans) sem verpir meðal annars á Grænlandi Hann er staðfugl á Íslandi. Talið er að 300 - 400 pör af fálkum verpi á Íslandi. Aðalfæða fálka er rjúpur en hann veiðir einnig endur, svartfugla og vaðfugla. Erlendis lifa fálkar einnig á litlum nagdýrum svo sem læmingjum. Í árum sem lítið er um rjúpur fækkar fálkum. Kjörsvæði fálka eru opin svæði. Þeir gera ekki hreiður heldur verpa beint á klettasyllur og nota oft gamla hrafnslaupa. Fálkar verpa oftast 3 - 4 eggjum. Eggin eru 5 vikur að klekjast út og ungarnir eru 7 vikur í hreiðrinu. Eftir það annast foreldrarnir þá í 3 vikur í viðbót en svo verða þeir að bjarga sér sjálfir. Ungarnir flakka um landið þangað til þeir verða tveggja til fjögurra ára en þá setjast þeir að á eigin varpstað. Fullorðnir fálkar dveljast allt árið á óðali sínu. Talið er að allt að fjórðungur af Evrópustofni fálka verpi á Íslandi. Fálkar eru alfriðaðir á Íslandi. Náttúrufræðistofnun fylgist með stofnbreytingum fálka. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Fuglar ,
Nr: 51064 Ljósmyndari: Friðþjófur Helgason Tímabil: 2000-2009