Stuttnefja

Stuttnefja (fræðiheiti: Uria lomvia) er strandfugl af svartfuglaætt og nokkuð lík langvíu. Hún er svört á höfði og baki en hvít að neðanverðu. Á veturna fær hún hvíta vanga. Goggurinn er svartur, oddhvass og með hvítri rönd á jaðri efra skolts. Fætur eru svartir og augun svört. Stuttnefjan verpir á líkum stöðum og langvían, en ólíkt henni (sem verpir á berar syllur og bríkur) er dálítil jarðvegur eða leir og sandur í eggstæðinu hjá stuttnefjunni. Þær eru líka yfirleitt fáar saman. Mesti þéttleiki stuttnefju í varpi hefur þó mælst 37 fuglar á fermetra. Stuttnefjuna má helst finna í stórum hópum í Látrabjargi, Hælavík og Hornabjargi. Lítið er vitað um ferðir hennar á veturnar en flestar langvíur eru hér frá byrjun apríl og fram til byrjun ágúst. Stuttnefjan átti sér ólík heiti eftir landshlutum. Í Látrabjargi var hún kölluð nefskeri og í Papey stuttvíi, í Skrúð drunnnefja og á Langanesi klumba. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Fuglar ,
Nr: 51059 Ljósmyndari: Friðþjófur Helgason Tímabil: 2000-2009