Jóhannes Jósefsson

Jóhannes Jósepsson eða Jóhannes á Borg (1883–1968) var íslenskur glímukappi, fæddur á Oddeyri á Akureyri, sem ferðaðist um alla Evrópu og Bandaríkin og sýndi glímu eftir aldamótin 1900. Hann tók þátt í Sumarólympíuleikunum 1908 þar sem hann keppti í grísk-rómverskri glímu fyrir hönd Danmerkur. Árið 1930 lagði hann allt sitt fé í að reisa Hótel Borg í Reykjavík og rak það næstu þrjátíu árin, eða þar til hann settist í helgan stein árið 1960. Eftir að hann reisti hótelið var hann jafnan nefndur Jóhannes á Borg. Texti af wikipedia

Efnisflokkar
Nr: 16759 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: 1900-1929 oth01209