Andakílsárfossar

Andakílsá er dragá sem fellur úr Skorradalsvatni og rennur um 12 kílómetra leið uns hún fellur í Hvítá í Borgarfirði. Í ánni eru fossar, Andakílsárfossar. Í Andakílsá er Andakílsárvirkjun en hún var byggð á árunum 1946-47. Virkjunin er í dag rekin af Orkuveitu Reykjavíkur. Virkjað afl er 8.2 megavött og ársafköst 32 gígawattstundir. Rennsli árinnar getur sveiflast allt frá 3 til 22 m3/sek. Í ánni veiðist bæði lax og silungur. Texti af Wikipedia.org

Efnisflokkar
Nr: 13900 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: 1930-1949 oth00990