Baróninn á Hvítárvöllum

Baróninn á Hvítárvöllum (eða Charles Gouldrée-Boilleau) var barón frá Frakklandi sem kom hingað til Íslands í lok 19. aldar og hafði tölverð áhrif á bæjarlífið. Þórarinn Eldjárn hefur skrifað um hann bókina Baróninn. Charles kom til Íslands árið 1898 og ástæður þess að mörgu leyti huldar. Barónstígurinn í Reykjavík er nefndur eftir honum, en þar var Charles með stórt fjós, enda var hann töluverður forgöngumaður við búskap hér á landi. Í fjósi Barónsins er nú verslunin 10-11. Charles bjó síðan lengi búi sínu að Hvítárvöllum, en við Hvítárvelli er hann jafnan kenndur. Faðir Charles var franskur og hafði verið sendiherra Frakka í Líma í Perú, en móðir hans var dóttir öldungaráðsmanns í Bandaríkjunum. Charles lauk námi við Eton-skóla í Englandi. Hann var mikill málamaður og gat talað 7 tungumál þegar hann kom hingað, og íslensku lærði hann á ótrúlega stuttum tíma. Charles lék á selló (hnéfiðlu) og hélt tvenna tónleika í Reykjavík. Hann keypti sér húsið að Laugarvegi 90.

Nr: 8533 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: Fyrir 1900 mmb00057