Gunnar Helgason og bróðir hans Ólafur

Ólafur Helgason og Gunnar Helgason (1882-1905) frá Kringlu. Drukknaðu á Suðurflösinni með systkinum sínum árið 1905. Systkinin frá Kringlu voru að koma heim, en þau voru Jón Helgason (28 ára), Gunnar Helgason (23ja ára), Ólafur Helgason (19 ára) og Valgerður Helgadóttir (22ja ára). Bræðurnir höfðu verið að vinna á skútu og Valgerður hafði verið í kaupavinnu í Gufunesi. Á sama skipi drukknuðu fimm aðrir ungir menn, m.a. þrír bræður frá Innsta-Vogi og Arndís Kristjánsdóttir frá Kirkjuvöllum. Suðvestan hvassviðri var þennan dag og gekk með skúrum. Skipið var sexæringur og fórst við Suðurflösina á Breiðinni.

Nr: 8515 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: 1900-1929 mmb00348