Knattspyrnulið ÍA

Aftari röð frá vinstri: Helgi Björgvinsson (1934-2017), Kristinn Valgeir Gunnlaugsson (1934-2001), Halldór Sigurbjörnsson (1933-1983), Þórður Þórðarson (1930-2002), Ríkharður Jónsson (1929-2017) fyrirliði og þjálfari, Þórður Jónsson (1934-2017). Fremri röð frá vinstri: Sveinn Teitsson (1931-2017), Guðmundur Sigurðsson, Helgi Biering Daníelsson (1933-2014), Jón Leósson (1935-2013), Guðjón Finnbogason (1927-2017). Úrslitaleikurinn fór fram á Laugardalsvellinum, gegn Fram og var það fyrsti leikur í Íslandsmóti, sem fór fram á grasi. ÍA vann úrslitaleikinn 2-1. Þórður Þórðarson skoraði bæði mörkin, það síðara beint eftir útspark frá Helga Dan. ÍA vann mótið með fullu húsi og markatalan var 14-2.

Efnisflokkar
Nr: 3872 Ljósmyndari: Óþekktur ljósmyndari Tímabil: 1950-1959 oth00022