Allt er fertugum fært

Revía frá árinu 1945 í uppsetningu leiknefndar KA. Þessi revía Theodórs Einarssonar „Allt er fertugum fært“ var frumflutt um páskana 1945 í nýbyggðu íþróttahúsi við Laugarbraut og var þetta fyrsti viðburðurinn í því húsi. Það var leiknefnd Knattspyrnufélag Akraness sem sá um að setja revíuna upp. Frá vinstri: Guðrún Sjöfn Jóhannesdóttir (1923-2016), Ragnhildur Ísleif Þorvaldsdóttir (1925-1998) og Emilía Þórðardóttir (1927-2010) Sama mynd haraldarhus.is nr 3441

Efnisflokkar
Nr: 37680 Ljósmyndari: Ólafur Árnason Tímabil: 1930-1949