Allt er fertugum fært
Revía frá árinu 1945 í uppsetningu leiknefndar KA. Þessi revía Theodórs Einarssonar „Allt er fertugum fært“ var frumflutt um páskana 1945 í nýbyggðu íþróttahúsi við Laugarbraut og var þetta fyrsti viðburðurinn í því húsi. Það var leiknefnd Knattspyrnufélag Akraness sem sá um að setja revíuna upp. Frá vinstri: Emilía Þórðardóttir (1927-2010) stássmey, Þórður Hjálmsson (1911-1985) sem Bessi, ambassador Akranesbæjar og Theodór Einarsson (1908-1999) ambassador stjórnarinnar. Sama mynd á haraldarhus.is nr 3447
Efnisflokkar
Nr: 37677
Tímabil: 1930-1949