Húsmæðranámskeið

Húsmæðranámskeið á Akranesi 1926. Þetta var 6 vikna matreiðslunámskeið sem var haldið í sumarhúsi Haraldar Böðvarssonar útgerðarmanns á Breiðinni. Námskeiðinu stýrði Bryndís Guðmundsdóttir frá Nýjabæ á Seltjarnarnesi. Frá vinstri: Helga Kristmannsdóttir í Albertshúsi, Ragnheiður Björnsdóttir (1904-1996) á Bakka, Lára Guðmundsdóttir á Ólafsvöllum, Guðrún Einarsdóttir (1906-1985) á Bakka, Bryndís Guðmundsdóttir stjórnandi (frá Nýjabæ á Seltjarnarnesi), Guðrún Ásmundsdóttir (1904-1998) í Lambhúsum, Ólafía Þorvaldsdóttir (1908-1947) á Valdastöðum, Lovísa Jónsdóttir á Stað og Sveinbjörg Sveinsdóttir (1902-1969) á Akri.

Nr: 27800 Ljósmyndari: Árni Böðvarsson Tímabil: 1900-1929