Alt Heidelberg

Frá vinstri: Garðar Óskarsson (1929-2010), Hilmar Snær Hálfdánarson (1934-2015), Ragnar Jóhannesson (1913-1976), Hörður Húnfjörð Pálsson (1933-2015) og Kjartan Trausti Sigurðsson (1939-2015) Leikritið var sýnt á árunum 1958-1959. Alt Heidelberg eftir Wilhelm Meyer-Förster. Þýðandi Freysteinn Gunnarsson. Leikritið gerist á 19. öld. Þegar erfðaprins nokkur kemur til náms í Heidelberg fer allt í uppnám, ekki síst hjá vertinum sem á að hýsa hinn tigna stúdent. Fljótlega heillast prinsinn af áhyggjulausu lífi stúdentanna og þá ekki síður af stúlku sem vinnur hjá gestgjafa hans. Hann hellir sér út í skemmtanalífið, en verður frá að hverfa þegar furstinn deyr og skyldan kallar.

Nr: 14670 Ljósmyndari: Árni Böðvarsson Tímabil: 1950-1959 arb00933