Alt Heidelberg

Frá vinstri: Sigríður Stefanía Sigmundsdóttir (1925-2018), Pétur Emil Júlíus Kolbeins Þorvaldsson(1936-2020), Kjartan Trausti Sigurðsson (1939-2015), Valtýr Benediktsson (1909-1961) og Sólrún Yngvadóttir (1929-2012)
Leikritið var sýnt á árunum 1958-1959. Alt Heidelberg eftir Wilhelm Meyer-Förster. Þýðandi Freysteinn Gunnarsson.
Leikritið gerist á 19. öld. Þegar erfðaprins nokkur kemur til náms í Heidelberg fer allt í uppnám, ekki síst hjá vertinum sem á að hýsa hinn tigna stúdent. Fljótlega heillast prinsinn af áhyggjulausu lífi stúdentanna og þá ekki síður af stúlku sem vinnur hjá gestgjafa hans. Hann hellir sér út í skemmtanalífið, en verður frá að hverfa þegar furstinn deyr og skyldan kallar.

Efnisflokkar
Fjöll ,
Nr: 14668 Ljósmyndari: Árni Böðvarsson Tímabil: 1950-1959 arb00931